Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 2130, 153. löggjafarþing 944. mál: útlendingar (dvalarleyfi).
Lög nr. 56 21. júní 2023.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um útlit og eiginleika dvalarleyfisskírteinis.
Sýna þarf fram á framfærslu í gjaldmiðli sem er alþjóðlega viðurkenndur og unnt er að umbreyta í mynt sem er skráð hjá Seðlabanka Íslands.
Þingskjal 2130, 153. löggjafarþing 944. mál: útlendingar (dvalarleyfi).
Lög nr. 56 21. júní 2023.
Lög um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (dvalarleyfi).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á c-lið 1. mgr. 51. gr. laganna:- Orðið „eða“ fellur brott.
- Við bætist: eða dvalarleyfi vegna doktorsnáms skv. 65. gr.
2. gr.
Í stað orðsins „undirrita“ í 2. málsl. 1. mgr. 52. gr. laganna kemur: með sannanlegum hætti staðfesta.3. gr.
2. mgr. 54. gr. laganna orðast svo:Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um útlit og eiginleika dvalarleyfisskírteinis.
4. gr.
2. mgr. 56. gr. laganna orðast svo:Sýna þarf fram á framfærslu í gjaldmiðli sem er alþjóðlega viðurkenndur og unnt er að umbreyta í mynt sem er skráð hjá Seðlabanka Íslands.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 57. gr. laganna:- 2. mgr. fellur brott.
- Orðin „eigi síðar en fjórum vikum“ í 5. mgr. falla brott.
6. gr.
Orðin „eigi síðar en fjórum vikum“ í 6. mgr. 58. gr. laganna falla brott.7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 61. gr. laganna:- Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr.:
- Í stað orðanna „tveggja ára“ í 1. málsl. kemur: fjögurra ára.
- Í stað orðanna „tvö ár“ í 2. málsl. kemur: fjögur ár.
- 3. mgr. orðast svo:
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 62. gr. laganna:- 2. málsl. 2. mgr. orðast svo: Heimilt er að endurnýja dvalarleyfið í allt að tvö ár í senn, þó aldrei til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis, enda séu uppfyllt skilyrði 1. mgr.
- Í stað orðsins „endurnýja“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: veita fyrsta.
- 4. mgr. orðast svo:
9. gr.
Í stað orðanna „eins árs“ í 1. málsl. 2. mgr. 63. gr. laganna kemur: tveggja ára.10. gr.
Í stað orðanna „sex mánaða“ í 2. mgr. 64. gr. laganna kemur: eins árs.11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 65. gr. laganna:- Við b-lið 2. mgr. bætist: eða hefur fengið heimild til undanþágu frá skilyrði um fullt nám, svo sem vegna skipulags náms á grundvelli beiðni frá hlutaðeigandi skóla.
- Í stað orðanna „sex mánuði“ í 8. mgr. kemur: þrjú ár.
12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 68. gr. laganna:- 2. málsl. 5. mgr. orðast svo: Heimilt er að endurnýja dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu einu sinni til eins árs en þó aldrei til lengri tíma en hlutaðeigandi samningur um vistráðningu gerir ráð fyrir.
- Í stað orðanna „Jafnframt er óheimilt“ í 3. málsl. 5. mgr. kemur: Óheimilt er.
- 3. málsl. 6. mgr. fellur brott.
- Við 8. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Útlendingastofnun er skylt að fela sérstökum eftirlitsaðila að hafa eftirlit með vistráðningum, þ.m.t. að taka út aðstæður á heimili vistfjölskyldu, svo sem með óboðuðu eftirliti, með því að taka viðtöl við hinn vistráðna og vistfjölskyldu og sjá til þess að vistráðningarsamningur sé virtur í hvívetna, m.a. um hámarksvinnuframlag. Útlendingastofnun ber ábyrgð á að fylgja eftir ábendingum eftirlitsaðila um brot á vistráðningarsamningi.
13. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 69. gr. laganna:- Í stað tilvísunarinnar „skv. 61., 63.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: skv. 61., 62., 63., 64., 65.
- Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Hið sama gildir um nánasta aðstandanda bresks ríkisborgara sem hefur dvalarleyfi á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða XI.
- 2. mgr. orðast svo:
14. gr.
Við 8. mgr. 70. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessarar málsgreinar, þ.m.t. til hvaða viðmiða skuli líta við mat á því hvort rökstuddur grunur sé um að til hjúskapar eða sambúðar hafi verið stofnað í þeim tilgangi að afla dvalarleyfis.15. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 71. gr. laganna:- Í stað tilvísunarinnar „61., 63.“ kemur: 61., 62., 63., 64., 65.
- Við bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Jafnframt er heimilt að veita umsækjanda sem náð hefur 18 ára aldri dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins hafi umsókn verið lögð fram áður en hann náði 18 ára aldri. Sé barn fætt hér á landi og foreldri eða foreldrar þess dvelja hér á landi á öðrum grundvelli en greinir í 1. málsl. er heimilt að veita barninu dvalarleyfi með sama gildistíma og dvalarleyfi foreldris.
16. gr.
Í stað tilvísunarinnar „2. mgr. 57. gr.“ í 1. og 4. mgr. 103. gr. laganna kemur: 3. mgr. 57. gr.17. gr.
Við 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða V í lögunum bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Réttur bresks ríkisborgara og aðstandenda hans sem hafa öðlast rétt til tímabundinnar dvalar skv. 84., 85. og 86. gr. fellur niður þegar viðkomandi hefur dvalist utan landsins í tvö ár samfellt.18. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.19. gr.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002:- Eftirfarandi breytingar verða á 6. mgr. 8. gr. laganna:
- Í stað orðanna „tveggja ára“ í 1. málsl. kemur: fjögurra ára.
- Í stað orðanna „tvö ár“ í 2. málsl. kemur: fjögur ár.
- Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
- Í stað orðanna „eitt ár“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: tvö ár.
- 5. mgr. fellur brott.
- Í stað orðanna „eins árs“ í 1. málsl. 2. mgr. 10. gr. laganna kemur: tveggja ára.
- Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:
- 1. mgr. orðast svo:
- Í stað orðanna „þurfa skilyrði a-, d- og e-liðar“ í 3. mgr. kemur: þarf skilyrði d-liðar.
- Í stað hlutfallstölunnar „40%“ í b-lið 1. mgr. og 2. mgr. 13. gr. laganna kemur: 60%.
- Í stað orðanna „sex mánaða“ í 3. mgr. 15. gr. laganna kemur: eins árs.
- Við 1. mgr. 22. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Erlendir makar og sambúðarmakar útlendinga sem veitt hefur verið tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar og börn þeirra að átján ára aldri sem eru í forsjá og á framfæri þeirra.
- Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Ráðherra skipar þrjá fulltrúa í starfshópinn. Ráðherra skal skipa einn fulltrúa án tilnefningar og skal hann jafnframt vera formaður starfshópsins, dómsmálaráðherra skal tilnefna einn fulltrúa og forsætisráðherra einn fulltrúa.
Samþykkt á Alþingi 9. júní 2023.